Loading Events

« All Events

Kátir krakkar helgarnámskeið

október 12 @ 1:00 e.h. - október 13 @ 3:00 e.h.

Kátir krakkar helgarnámskeið með foreldri fyrir 6-8 ára helgina 12. og 13. október
kl: 13:00-15:00 hreyfisal

Markmið námskeiðsins er að skapa gæðastund foreldris og barns. Áhersla er lögð á aðferðir til að efla sjálfsmyndina í gegnum leik, gleði og núvitund til að auka vellíðan.

Á námskeiðinu er foreldri með barni sínu og tekur virkan þátt í tímunum.

Á námskeiðinu læra börnin meðal annars að:
Velja jákvæðni umfram neikvæðni
Efla sjálfsmynd sína og sjálfstraust
Koma auga á styrkleika sína og nýta þá
Hafa trú á eigin getu og hvetja sig áfram
Takast á við tilfinningar sínar sem stundum eru krefjandi
Nota djúpa öndun daglega í allskonar aðstæðum
Auka einbeitingu og ímyndunarafl sitt
Gera jóga í gegnum leik
Slaka á og hugleiða

Námskeiðið byggir á aðferðafræði jákvæðrar sálfræði og núvitundar sem færir bæði þér og barni þínu verkfæri sem nýtast í daglega lífinu.

Details

Start:
október 12 @ 1:00 e.h.
End:
október 13 @ 3:00 e.h.